Helgin var góð, mjög góð. Á föstud. hittumst við stelpurnar
heima hjá Árný og elduðum saman. Sötruðum, kjöftuðum og hlógum
saman langt frammeftir og skelltum okkur svo í bæinn. Dönsuðum frá
okkur allt vit og fórum ekki heim fyrr en allt var að loka.
Stelpur, setjið inn myndir!!
Ég býst við að ég fari heim á þriðjudaginn. Verð þá búin að vera
hér hjá M&P í tvær og hálfa viku. Ég er búin að hafa það mjög
nice hér, aðallega í afslöppun bara.
Í hvert skipti sem ég fer í Reykjavíkina geri ég mér meira og
meira grein fyrir því hvað ég er rosalega sátt og ánægð með lífið á
Egilsstöðum.
Ég hef svo enga þolinmæði fyrir höfuðborgarsvæðinu. Allt í stressi
og maður stressist bara allur upp á að vera þarna. Umferðin, jesús
minn. Hún bara gengur ekki neitt. Og frekjan í fólki! Úff ég verð
bara pirruð við að skrifa þetta.
En mikið rosalega er ég líka fegin að smekkur manna er misjafn því
annars myndu allir búa á Egilsstöðum og þá væri sjarmurinn farinn
af bænum.
En yfir að öðru.
Árni Johnsen aftur á þing! Er ekki allt í lagi?!?
Þessi maður stal af okkur öllum, hann stal af allri þjóðinni, mér
og þér! Og það á meðan hann sat á þingi. Hann sat í fangelsi,
hann er afbrotamaður.
Þetta er örugglega einsdæmi í öllum heiminum að maður sem setið
hefur í fangelsi sé kosinn á þing.
Þið sem kusuð hann, mér finnst þið vera heimsk.
En jæja, nóg af röfli.
Á morgun er Mánudagur og svo kemur Þriðjudagur og þá fer ég heim!!
Jeijjj.
En núna ætla ég að fara að hafa það kósý fyrir framan sjónvarpið
með mínum elskulegum foreldrum.
Later ...